forsida
sendapost
vidarbrennsluarnar
rafmagnsarnar
gasarnar
fylgihlutir
utiarnar
Útiarnar

Leiðbeiningar fyrir útiarna frá Arinbúðinni

Eftir að hafa sett útiarininn saman, skaltu koma honum fyrir á góðum stað á veröndinni eða í garðinum.
Gæta skal þess að hann sé í hæfilegri fjarlægð frá brennanlegum efnum t.d. timburvegg, grindverki eða plöntum.
Útiarnarnir endast vel, enda gerðir úr steypujárni og geta þess vegna staðið úti allt árið, frostspringa ekki og þola mikinn hita.
Æskilegt er að setja lokið sem fylgir á strompinn þegar arininn er ekki í notkun, það kemur í veg fyrir að það rigni ofan í hann.

Brenna má timbri, kolum, grillkolum og verksmiðjuframleiddum arinkubbum í arninum, aldrei skal nota fljótandi eldsneyti af neinu tagi. Aðeins má kveikja upp í arninum utanhúss.

Yfirborð arinsins verður mjög heitt þegar kveikt hefur verið upp, fylgist þess vegna vel með börnum og húsdýrum.
Útiarininn er málaður með hitaþolinni málningu, við mælum með því að hann sé málaður með hitaþolnu spreyi á eins til tveggja ára fresti. Hitaþolið sprey fæst í byggingavöruverslunum.
Ef arininn rispast skal strax bletta í sárið með málningu til að koma í veg fyrir að hann ryðgi.Til að verja arininn gegn raka er gott ráð að bera á hann matarolíu.

Ef ofantalið er haft í huga endist arininn í mörg ár.

Til hamingju með útiarininn!

til baka

Arinbúðin · Arinkúnst Sími 8212100 – 8212101 - 5115011
Netfang: arinn@arinn.is