|
Að
kveikja upp á réttan hátt
Það virðist ofur einfalt að henda nokkrum kubbum
í arininn og kveikja síðan í, svo er
ekki. Það er ekki sama hvernig kveikt er upp í
arni. Hér verða talin upp nokkur atriði sem gott
er að hafa í huga:
Fullvissaðu þig um að kalt loft streymi ekki niður
skorsteininn (reykrörið) þegar kveikja skal upp.
Allir vita að kalt loft leitar niður á við
og heitt loft leitar upp. Ef sú er raunin eru til nokkur
ráð.
Lokaðu gluggum, raðaðu síðan eldivið
í arininn raðaðu kriss kross þannig
að gott bil sé á milli þeirra.
Krumpaðu saman blaðsíðum úr dagblaði
og settu á milli kubbanna, 4-6 stk.
Til að snúa trekknum við er í flestum tilfellum
nóg að rúlla upp 2-3 síðum af dagblöðum
og binda einn hnút, leggðu þau síðan
ofan á viðinn, hitinn sem þá myndast nægir
oftast til að snúa trekknum. Kveiktu síðan
í blöðunum milli kubbanna, nú ætti
eldurinn að taka vel við sér svo framarlega að
þú sért að brenna þurran við.
Kyntu vel upp í byrjun til að fá góðan
hita bæði í eldstæðið og skorsteininn,
(reykrörið) þá hefur þú myndað
góðan trekk. Bættu síðan á
eftir þörfum, ekki láta eldinn koðna niður.
Eftir að eldurinn hefur lifnað vel við skaltu opna
glugga til að auka trekkinn.
Ef þú vilt hægja á eldinum er gott að
minnka aðstreymi súrefnis og stilla í leiðinni
reykspjaldið (minnka trekkinn).
Meira loft = Meiri hiti og styttri brennslutími. Minna
loft = Minni hiti og lengri brennslutími.
Ekki nota vökva af neinu tagi við uppkveikju, aðeins
dagblöð.
Æfingin skapar meistarann, vanur kyndari notar aðeins
eina eldspýtu.
Brenndu þurrum við
Allt að helmingur þyngdar á nýfelldu tré
er vatn. Notaðu aðeins þurrkaðan við (seasoned
wood) sem hefur verið þurrkaður í 6-12 mánuði
og er þá rakinn innan við 20%. Ef þú
brennir óþurrkuðum við fer mikil orka í
að losa rakann úr honum sem nýtist ekki til
upphitunar. Auk þess eykur það sótmyndun
í skorsteininum sem dregur úr virkni hans svo ekki
sé talað um óþarfa mengun. Sjáir
þú reyk stíga upp af skorstein ber það
vott um kunnáttuleysi eigandans, góður kyndari
brennir reyknum.
Það þarf átta kubba af blautum við
til að gefa sama hita og af fjórum þurrum. Best
er að brenna harðvið, hann gefur mestan hita og logar
lengur.
Skorsteinninn
Til að arinn eða kamína virki eins og best verður
á kosið, verður skorsteinninn að vera rétt
hannaður. Könnun í Bandaríkjunum leiddi
í ljós að 70% skorsteina eru rangt hannaðir.
Helstu ástæður:
Skorsteinn var of stuttur (lágmark 4 metrar) þess
vegna var ekki nægjanlegur trekkur.
Innanmál ekki rétt, skorsteinn of víður
miðað við stærð eldstæðis.
Slógu niður, oft vantaði það sem
á ensku nefnist Draft converter, spjald sem
komið er fyrir neðst í skorstein til að koma
í veg fyrir að það slái niður
í arininn. Þetta spjald er í öllum örnum
og eldstæðum frá Rocal.
Stærð eldstæðis
Auðvelt er að reikna út hve stórt eldstæði
eða kamínu þarf til að hita upp rými.
Margfaldið saman lengd x breidd x hæð rýmis
í fetum, deilið síðan í þá
tölu með 600, útkoman sýnir þau kílówött
sem þarf til að halda 20° hita í rýminu.
til
baka
Arinbúðin · Arinkúnst Sími 8212100 – 8212101 - 5115011
Netfang: arinn@arinn.is
|